Vilyrði gefin en ekkert að gerast

Guðmundur Fylkisson lögreglumaður hefur um árabil einbeitt sér að því að finna týnd börn og koma þeim í skjól og vakið athygli á málefnum barna með fjölþættan vanda. Í fyrra þurfti að leita fleiri barna en nokkru sinni og mikil og hávær umræða var um skort á úrræðum fyrir þennan hóp.Guðmundur var valinn manneskja ársins 2025 að mati hlustenda Rásar 2, fréttastofu Sýnar og lesenda Smartlands. Hann segist hafa verið boðaður á fundi hjá stjórnvöldum af því tilefni.„Það voru gefin vilyrði á gamlársdag en ég er ekki farinn að sjá neitt gerast. Hópurinn minn er sá sami. Hann er enn að strjúka úr þessum úrræðum sem eru í boði, sem eru enn þá opin. Börnin sem eru með fjölþættan vanda á erfiðasta staðnum, sem ríkið ætlaði að taka við, ég er ekki farinn að sjá að það sé neitt að gerast þar,“ sagði G
Vilyrði gefin en ekkert að gerast

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd