Enn eru lík fórnarlamba að finnast í húsarústum í La Guaira í Venesúela svo tölur yfir fjölda látinna gætu átt eftir að hækka enn frekar.AP / Ariana CubillosStjórnvöld í Venesúela hafa staðfest að 4.829 fórust í jarðskjálftum 24. júní. Tuga þúsunda er saknað og fólk leitar enn ástvina í rústum húsa og bygginga.Ríflega 20 þúsund misstu heimili sín í jarðskjálftunum og hafast við í tjaldbúðum þar sem víða er skortur á vatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu. Um 16.800 slösuðust í skjálftunum en flestir hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum.