Bílar lengjast, breikka og hækka í þrálátri bílabólgu

Til er - og þekkt - enska hugtakið manspreading, sem á íslensku gæt útlagst sem karlaglenna, og vísar til þeirrar tilhneigingar karla að gera sig breiða með því að sitja sem gleiðastir hvar sem því verður við komið og helst þar sem síst skyldi. Enska hugtakið carspreading er dregið af þessu, en er líklega betur þýtt sem bílabólga, því þetta vísar til þess að bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi. Á sama tíma fer meðalfjölskyldan minnkandi og bílunum fjölgandi.Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, T&E, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á á
Bílar lengjast, breikka og hækka í þrálátri bílabólgu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd