Viss áhætta að taka skólahald upp að nýju í Grindavík

Skólahald á að hefjast að nýju í Grindavík í næsta mánuði. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir vissar líkur á að eldsumbrotum sé lokið.„Það er þannig að það er kvika að safnast fyrir og meðan svo er þá er líklegast að þetta endi með eldgosi. Þetta gæti hætt áður og þá er þetta búið en ef við berum þetta saman við Kröfluelda þá voru þrjú gos 1980, tvö gos 1981 og svo liðu þrjú ár þangað til síðasta gosið kom.“Hann segir langlíklegast að það gjósi á Sundhnúksgígaröðinni en erfitt sé að segja nákvæmlega til um staðsetningu.„Þó er nú líklegra að það sé miðjan eða jafnvel norðurhlutinn miðað við hvernig þetta hefur hegðað sér,“ segir Magnús Tumi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann í kvöldfréttum sjónvarps.Prófessor í jarðeðlisfræði segir líkur á það eldsumbrotum v
Viss áhætta að taka skólahald upp að nýju í Grindavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd