Skólabörn frá Raufarhöfn ferðast 126 kílómetra á dag

Grunnskólinn á Raufarhöfn hefur verið lokaður síðan í október. Óvíst er hvenær skólahald hefst aftur í bænum. Á meðan ganga börnin í Öxarfjarðarskóla.Raufarhöfn var einn stærsti síldarsöltunarstaður landsins á sjöunda áratugnum og þar bjuggu yfir 600 manns. Þegar vertíð stóð sem hæst fjölgaði í tvö þúsund með farandverkafólki sem þangað kom til að vinna. Síldin hvarf 1967 og íbúum hefur fækkað æ síðan.Þegar mest var voru um 100 börn í skólanum. Á næsta ári verða þau bara tvö og búið er að taka ákvörðun um að skólinn verði ekki opinn.Fjölskylduráð Norðurþings ákvað að loka grunnskólanum á Raufarhöfn í október 2025. Vonir stóðu til að hann yrði opnaður aftur í haust en af því verður ekki. Börnunum tveimur verður ekið í Öxarfjarðarskóla, í 63 kílómetra fjarlægð frá Raufarhöfn.Grunnskólanum á
Skólabörn frá Raufarhöfn ferðast 126 kílómetra á dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd