Enn eru lík fórnarlamba að finnast í húsarústum í La Guaira í Venesúela svo tölur yfir fjölda látinna gætu átt eftir að hækka enn frekar.AP / Ariana CubillosYfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 4.829 fórust í jarðskjálftunum í Venesúela 24. júní. Tugþúsunda er enn saknað og fólk leitar enn ástvina í rústum húsa og bygginga.Ríflega tuttugu þúsund manns misstu heimili sín í jarðskjálftunum og hafast við í tjaldbúðum þar sem víða er skortur á vatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu. Þá slösuðust um 16.740 manns í skjálftunum en flestir hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum.