ETS-undanþágur fyrir flugsamgöngur framlengdar um þrjú ár fyrir Ísland

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að leggja til að undanþága Íslands frá ETS kerfi Evrópusambandsins fyrir losunarheimildir í flugi verði framlengd um þrjú ár. Núverandi undanþága sem veitt var fyrir rúmum þremur árum átti að renna út um næstu áramót, en íslensk stjórnvöld hafa í langan tíma barist fyrir því að hún yrði framlengd eða að varanleg lausn yrði fundin.Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar er hluti af viðamikilli endurskoðun á ETS kerfinu sem beðið hefur verið eftir í langan tíma og kynnt er í Brussel í dag. Í þessari endurskoðun er í meginatriðum lagt til að iðnaðargreinar og önnur starfsemi sem fellur undir ETS fái rýmri tíma og meira svigrúm til að minnka útblástur.„Ég tel að þetta sé mikilvægt og jákvætt skref,“ sagði Wopke Hoekstra yfirmaður umhverfismála í framkvæmdastjó
ETS-undanþágur fyrir flugsamgöngur framlengdar um þrjú ár fyrir Ísland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd