Gátu ekki upplýst orsök þess að kafari missti meðvitund

Rannsóknarnefnd samgönguslysa gat ekki komist að orsök þess hvers vegna 65 ára maður missti meðvitund við hópköfun í Silfru á Þingvöllum sumarið 2024. Nefndinni var ekki tilkynnt um slysið heldur frétti hún af því í fjölmiðlum. Það tók lögreglu sextán daga að svara upplýsingabeiðni nefndarinnar. Þá var kafarinn farinn af landi brott.Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í gær. Þrír kafarar voru með leiðsögumanni, 46, 65 og 74 ára. Elsti kafarinn fór tvisvar upp á yfirborðið vegna þreytu og var hugað að honum. Síðan uppgötvaðist að næstelsti kafarinn lá hreyfingarlaus við grjót á botni lónsins. Leiðsögukafarinn flýtti sér niður að kafaranum og kom honum upp á yfirborðið. Fólk sem var við yfirborðsköfun í Silfru synti til þeirra og aðstoðaði við að koma meðv
Gátu ekki upplýst orsök þess að kafari missti meðvitund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd