Kínversk stjórnvöld vísa á bug ásökunum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að landið hafi komist yfir gögn um bandaríska kjósendur og reynt að hafa áhrif á kosningar þar í landi.Orð forsetans eru tómur tilbúningur og meinfýsinn rógburður, sagði Lin Jian, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins. Hann sagði að fyrir löngu hefði verið sýnt fram á að ásakanir Trumps væru tilhæfulausar. „Alþjóðasamfélagið er meðvitað um hver það er sem skiptir sér reglulega af innanríkismálum annarra ríkja.“Lin sagði Kínverja ekki hafa skipt sér af bandarískum kosningum og ekki hafa áhuga á þeim.Trump sagði í sjónvarpsávarpi í gær að Kínverjar hefðu komist yfir upplýsingar um 220 milljónir bandaríska kjósendur á síðustu árum. Þetta sagði Trump þegar hann hvatti til breytinga á kosningalögum. Hann hefur reyn