Börnum og ungmennum sem hafa alist upp í mafíufjölskyldum á Ítalíu verður gefinn kostur á að brjótast undan mafíunni samkvæmt nýjum ítölskum lögum. Lögin eru sögð eiga að brjóta upp hefðir í mafíumenningu. Starfsemin erfist jafnan milli kynslóða og sonur mafíuforingja erfir oft stöðu föður síns sem höfuð ættarinnar.Börnum yngri en 25 ára og öðrum nánum ættingjum mafíuforingja verður gefinn kostur á að byrja nýtt líf, fá nýtt heimili í annarri borg, ganga í annan skóla og, ef nauðsyn krefur, nýtt nafn og auðkenni.Yfirvöld gera ráð fyrir að um 400 börn úr mafíufjölskyldum muni skrá sig til leiks ár hvert í átakið, sem ber nafnið Frelsi til að velja (Liberi di Scegliere).„Þetta eru gríðarmikilvæg lög sem gætu umbreytt lífi hundraða kvenna og barna,“ hefur breska blaðið Guardian eftir Roberto