Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóðinni Bjarkarholt 32-34 í Mosfellsbæ sem er í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagsins.Frá þessu er greint í Heimildinni í dag. Þar segir Bergþór að verið sé að vinna í málinu og hann á ekki von á að af nauðungarsölunni verði. Hann segist hvorki vera á launum hjá félaginu né hafa fengið arð greiddan.Nauðungarsalan var auglýst í Lögbirtingablaðinu 2. júlí. Þar kom fram að Efniviður ehf., fyrirtæki sem fæst við leigu atvinnuhúsnæðis, og Arion banki fóru fram á nauðungarsöluna. Hún vegna krafna upp á 981 milljón króna.Samkvæmt Heimildinni stóð til að reisa hjúkrunarheimili á lóðinni í samvinnu við Eir og Mosfellsbæ en frá því var fallið fyrr á þessu ári.Render Centium er skráð í atvinnuflokknum