Kröfuhafar hafa farið fram á nauðungarsölu á þremur lóðum í Mosfellsbæ í eigu félagins Render Centium. Kröfurnar hljóða upp á 981.467.761 krónur. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagins ásamt föður sínum og kom samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar að kaupunum á lóðunum. Hann hefur ekki skráð þær í hagsmunaskrá Alþingis eins og kveðið er á um í reglum. Málið varpar einnig ljósi...