Tveir brasilískir kafarar eru á meðal þeirra níu sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um smygl á 106 kílóum af kókaíni til landsins með súrálsskipi til Straumsvíkur, samkvæmt heimildum fréttastofu.Fram hefur komið að níu séu í haldi vegna málsins, þrír Íslendingar og sex útlendingar, meðal annars frá Brasilíu og Rúmeníu.Fíkniefnin voru falin í sjókistu súrálsskipsins Koznitza sem sigldi hingað úr höfn í Norður-Brasilíu, nærri borginni Belém. AFAR FLÓKIÐ VERK AÐ SÆKJA FÍKNIEFNIN Kunnáttumenn segja ljóst að það hafi verið mikið verk að sækja efnin í sjókistuna, sem er á skipsskrokknum undir sjávarmáli, og að það hafi nær örugglega bæði útheimt mikla lagni og búnað. Sérstaklega er nefnt í því samhengi að Koznitza hafi komið til landsins 22. júní, daginn eftir sumarsólstöður, og mennirnir þv