Útgerðarmenn leggja til að vélstjórnarnemar verði teknir um borð í skip svo að fleiri nái að afla sér réttinda sem vélstjórar á flotanum. Formaður VM geldur varhug við þessu. Ef leysa eigi mönnunarvanda með erlendum vélstjórum í gegnum starfsmannaleigur þurfi viðkomandi að uppfylla öll skilyrði og njóta sömu starfskjara og meðlimir VM.