Vætutíð vestan til en bjart fyrir austan

Hæð suður af landinu sem hefur mótað veðrið síðustu daga heldur sig á sínum stað og því er útlit fyrir svipað veður áfram. Vestlægar áttir leika um landið með hita og sól á Austurlandi en skýjum og dálítilli rigningu eða þokusúld annars staðar.Veðurspáin er svohljóðandi:Vestan og norðvestan þrír til tíu metrar á sekúndu og bjart að mestu, en skýjað vestanlands fram yfir hádegi. Suðvestlæg átt fimm til þrettán á morgun, hvassast norðvestantil. Skýjað á vestanverðu landinu og sums staðar dálítil væta, en annars léttskýjað. Hiti yfirleitt á bilinu 16 til 22 stig, en heldur svalara við vesturströndina.
Vætutíð vestan til en bjart fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd