Í dag verður vestlæg átt á landinu, 3-10 m/s. Framan af degi verður skýjað og sums staðar dálítil rigning eða súld en eftir hádegi kemur aðeins þurrara loft að landi og það léttir víða til. Bjart verður að mestu á Austurlandi. Hitinn verður á bilinu 11 til 23 stig og verður hlýjast austantil.