Starfsmaður sem sér um textavél (e. teleprompter) í Hvíta húsinu er til rannsóknar vegna gruns um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar til að veðja á ræður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hagnast um tæplega 100 þúsund dali.Hinn grunaði, Gabriel Perez, sem hefur starfað í Hvíta húsinu frá árinu 2016, er sakaður um að hafa veðjað á það hvaða orð forsetinn myndi nota í mikilvægum opinberum ræðum.Veðmálin voru gerð á Kalshi, sem er spámarkaðsvettvangur þar sem notendur geta veðjað á raunverulega atburði. Samkvæmt frétt BBC frysti Kalshi aðgang Perez áður en hann náði að taka út nokkurn hagnað. ÓVENJULEG VEÐMÁL VÖKTU ATHYGLI Forsvarsmenn Kalshi sögðu í samtali við BBC að sérfræðingar þeirra hefðu í mars tekið eftir óvenjulegum veðmálum á svokölluðum „orðamörkuðum“ (e. mention markets), þa