Talið er að að minnsta kosti 12.000 umframdauðsföll í Evrópu megi rekja til hitabylgjunnar sem gekk yfir hluta álfunnar í júní.AFP fréttaveitan greindi tölfræðilegar upplýsingar um fjölda umframdauðsfalla dagana 22.-28. júní í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Lúxemborg, Hollandi, Spáni og Sviss. Um 10.000 umframdauðsföll voru skráð í löndunum þessa daga.Þá voru um 2.200 umframdauðsföll í Englandi og Wales milli 18. og 28. júní einnig rakin til hitabylgjunnar. Tölur yfir fjölda látinna gætu átt eftir að hækka þegar sambærilegar upplýsingar frá fleiri löndum liggja fyrir. GAGNRÝNIR RÍKISSTJÓRNIR FYRIR AÐGERÐALEYSI Hans Henri P. Kluge, svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Evrópu, hefur varað við því að sumarið sé ekki yfirstaðið. „Þetta eru ekki náttúruhamfarir og þetta