Fjölmiðlafyrirtæki Donalds Trump tilkynnti í dag að það hygðist selja hraðari aðgang að færslum Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum sem geta haft áhrif á markaði. AFP-fréttastofan greinir frá þessu.Með þessu móti er verið að græða á færslum Trumps á miðlinum Truth Social, en hann hefur verið duglegur að nota miðilinn til upplýsinga um alls konar málefni sem oftar en ekki skapa fyrirsagnir á heimsvísu.Trump Media segir að svokölluð „Truth API“-þjónusta muni veita leyfisskyldan rauntímaaðgang að færslum þeirra reikninga sem njóta mestrar hylli á Truth Social.Þjónustan, sem hefst 1. ágúst, gæti nýst verðbréfasölum og fjármálafréttamiðlum sem treysta á sekúndubrotamun þegar kemur að nýjustu fréttum. BRÚAR BILIÐ FYRIR FYRIRTÆKI SEM HAFA TREYST Á HANDVIRKA VÖKTUN „Markaðir hreyfast nú þegar v