Skólahald á að hefjast að nýju í Grindavík í næsta mánuði. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir vissar líkur á því að eldsumbrotum á svæðinu sé lokið.„Það er þannig að það er kvika að safnast fyrir og meðan svo er þá er líklegast að þetta endi með eldgosi. Þetta gæti hætt áður og þá er þetta búið en ef við berum þetta saman við Kröfluelda þá voru þrjú gos 1980, tvö gos 1981 og svo liðu þrjú ár þangað til síðasta gosið kom.“Hann segir langlíklegast að ef komi til eldgoss verði það á Sundhnúksgígaröðinni en að erfitt sé að segja til um nákvæma staðsetningu.„Þó er nú líklegra að það sé miðjan eða jafnvel norðurhlutinn miðað við hvernig þetta hefur hegðað sér,“ segir Magnús Tumi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann í kvöldfréttum sjónvarps.Prófessor í jarðeðlisfræð