Vestri mætti Qarabag frá Aserbaísjan öðru sinni í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Qarabag vann fyrri leikinn í síðustu viku 3-0 og endurtók leikinn í kvöld með öðrum 3-0 sigri. Jaly Mouaddib skoraði fyrsta markið á 5. mínútu, Pedro Bicalho bætti öðru við á 29. mínútu og það þriðja skoraði Zakaria Sawo á 56. mínútu.Vestri er því úr leik í Evrópudeildinni í ár en fer í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þar mætir liðið RFS frá Lettlandi og er fyrri leikurinn í Riga þann 23. júlí næstkomandi.Vestri er bikarmeistari en leikur í næstefstu deild eftir fall úr Bestu deildinni síðasta haust.Mummi Lú