Menningar- og tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím hófst á Akureyri í kvöld, en hátíðin er nú haldin í níunda sinn. Hún á sér fáar hliðstæður hér á landi, en markmið hennar er að fóstra og rækta menningarlegt vistkerfi utan meginstraumsins á Akureyri og ná til jaðarhópa.Fjögur atriði voru á dagskránni í kvöld og eiga þrettán til viðbótar eftir að líta dagsins ljós um helgina.Jón Haukur Unnarsson, „slímmálaráðherra“ hátíðarinnar, segir tónlistina spanna allt milli himins og jarðar. „Það er ansi fjölbreytt prógramm um helgina og sjón er sögu ríkari. Ég mæli með því að sem flest mannfólk komi og breytist í slím hérna með okkur.“Ókeypis er inn á hátíðina en gestum er frjálst að greiða þá upphæð sem þeir vilja til að styðja við viðburðinn.