FH komst á ný í efsta sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir stórsigur á Grindavík/Njarðvík í kvöld.Grindavík komst yfir á 12. mínútu og var 1-0 yfir þar til á 41. mínútu en þá skoraði FH tvisvar fyrir leikhlé. FH bætti svo fjórum mörkum við í seinni hálfleik og vann með sex mörkum gegn einu.FH komst með sigrinum aftur í efsta sæti deildarinnar. FH er með 26 stig, tveimur meira en Breiðablik. Grindavík/Njarðvík er eftir sem áður í 6. sæti með 12 stig.Grindavík/Njarðvík - FH:1-0 Hannah McLaughlin1-1 Helena Errington1-2 Ída Marín Hermannsdóttir1-3 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir1-4 Helena Errington1-5 Nia Christopher1-6 Ragnheiður Skúlad.FH fagnar marki fyrr í sumarRÚV / Mummi Lú