Það er talsverður viðbúnaður í Glerárdal suðvestur af Akureyri. Allar björgunarsveitir í Eyjafirði hafa verið kallaðar út ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta.Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra staðfestir að viðbúnaðurinn sé vegna björgunaraðgerðar. Hann segir útkallið á háum forgangi, F2. Það er næstmesta forgangsstig útkalla.Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.