Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees.