Stjarnan komst í dag áfram í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Stjarnan sótti Víking frá Götu heim til Færeyja. Stjarnan var með 3-1 forskot eftir fyrri leikinn í síðustu viku.Það forskot fór á þriggja mínútna kafla í seinni hálfleik þegar Aron Benjaminsen og Sölvi Vatnhamar skoruðu fyrir Víking. Stjarnan svaraði því með mörkum frá Birni Snæ Ingasyni (67. mínútu) og Guðmundi Baldvin Nökkvasyni (81. mínútu) og 2-2 fór.Stjarnan vann því 5-3 samanlagt og fer áfram og mætir Ilves frá Finnlandi í næstu umferð. Fyrri leikurinn er strax eftir viku.Stjarnan fagnar marki fyrr í sumarRÚV / Mummi Lú