Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði.