Dvalartími erlendra stúdenta og blaðamanna í Bandaríkjunum verður styttur, samkvæmt nýjum reglum stjórnvalda. Þetta er einn liður í að draga úr straumi innflytjenda til landsins.Reglurnar kveða á um að erlendir blaðamenn geti dvalið að hámarki í 240 daga, eða um átta mánuði í Bandaríkjunum. Þeir geta svo sótt um 240 daga framlengingu. Áður gátu þeir fengið leyfi í nokkur ár. Sérreglur gilda um kínverska blaðamenn - þeir geta aðeins fengið 90 daga dvalarleyfi.Hámarksdvalarleyfi stúdenta verður fjögur ár samkvæmt reglunum, eða það sem til þarf til að ljúka náminu. Ekkert slíkt hámark var í gildi áður. VILJA STÖÐVA EILÍFÐARSTÚDENTA Reglurnar voru fyrst kynntar í ágúst 2025 og voru þá gagnrýndar harðlega, en þeim hefur lítið verið breytt síðan og er nú stefnt að því að þær taki gildi í sept