Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttur.Síðast sást til hennar á þriðjudagskvöld. Þá var hún klædd í svartar joggingbuxur, bláa hettupeysu með rennilás, svartan Reykjavík Roses-jakka og hvíta og svarta Nike-skó. Sæbjörg er um 153 cm á hæð og með sítt, dökkt hár.Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ferðir eða dvalarstað Sæbjargar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í gegnum Neyðarlínuna í síma 112.Sæbjörg er hvött til að hafa samband við fjölskyldu sína eða lögreglu sem allra fyrst.Skjáskot / Facebook