Ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar um að hleypa rússnesku nefndinni aftur inn, og þar með leyfa Rússum að taka þátt í Ólympíuleikunum á ný, stendur þrátt fyrir andstöðu Evrópuríkja. Þetta staðfesti fulltrúi nefndarinnar við fréttastofu Reuters.Níu lönd í Evrópusambandinu skoruðu á sambandið að hætta að setja fjármagn í íþróttasambönd sem leyfa rússneskum og belarúskum íþróttamönnum að taka þátt í keppnum á sínum vegum. Fyrir utan Alþjóðaólympíunefndina á þetta við um Alþjóðasundsambandið og Alþjóðaskylmingasambandið, en í dag tilkynnti Alþjóðahandknattleikssambandið að það hefði einnig aflétt banni sínu á þessa íþróttamenn.Bann Alþjóðaólympíunefndarinnar hafði verið í gildi frá því í október 2023. Fulltrúi nefndarinnar segir ástæðuna fyrir því að banninu sé aflétt nú þá að Rússar hafi ógi