Evrópusambandið vinnur að nýrri og umdeildri löggjöf sem á að sporna gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum á netinu. Tillagan heitir CSAR (Child Sexual Abuse Regulation) en hefur verið kölluð „Chat control“ af gagnrýnendum. Hún gæti neytt tæknifyrirtæki, eins og Meta, Google, Microsoft til að nota sjálfvirkan hugbúnað eða gervigreind til að skanna myndir, hlekki og önnur samskipti milli fólks á samskiptaforritum til að finna barnaníðsefni eða vísbendingar um tælingu.Tillagan er ekki orðin að lögum enn sem komið er og hafa umræður á Evrópuþinginu snúist um hvort og hvernig sé hægt að finna jafnvægi í að vernda börn og virða einkalíf.Málið hófst 2020 þegar framkvæmdastjórn ESB kynnti nýja stefnu til að herða baráttuna gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Ylva Johansson, innanríkismálastj