Siggi „hakkari“ játar að hafa svikið 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Sigurð Þórðarson í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og vopnalagabrot.Sigurður, sem stundum hefur verið kallaður „Siggi hakkari“, sveik rúmar 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja á árunum 2019 til 2021. Hann játaði brotin skýlaust.Í mörgum tilfellum þóttist Sigurður vera framkvæmdastjóri ónefndra fyrirtækja, til dæmis með því að framvísa fölsuðum ársreikningum eða öðrum skjölum, og pantaði dýrar vörur sem hann greiddi ekki fyrir. SAMLOKUGRILL, ÚR OG TÍSKUFATNAÐUR GERÐUR UPPTÆKUR Sigurði er gert að greiða sex fyrirtækjum um sjö milljónir króna. Honum er auk þess gert að greiða tæpar þrjár milljónir í málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns og eina milljón og 400 þúsund krónur í annan sakarkostnað.Sigurður samþykkti bótakröfurnar
Siggi „hakkari“ játar að hafa svikið 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd