Reykjavíkurborg hefur ekki ráðið upplýsingafulltrúa eftir uppsagnir í júní. Hins vegar hefur verið samið við tvo starfsmenn úr fyrra samskiptateymi um að starfa fram að uppsagnarfresti um áramótin.Þetta kemur fram í svari Hildar Björnsdóttur borgarstjóra við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar sem var lagt fram á borgarráðsfundi í dag.Í júní var upplýsingafulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði, velferðarsviði og skóla- og frístundasviði sagt upp auk fleiri starfsmanna. Alls voru 18 störf lögð niður og níu færð til á milli sviða.Í svarinu segir að borgarstjóri hafi með aðstoð starfsfólks skrifstofu borgarstjóra haldið utan um upplýsingamál á meðan unnið sé að nýju fyrirkomulagi sem verður kynnt á næstu vikum. Ekki hafi verið keypt þjónusta eða verkefnum útvistað eftir uppsag