Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem rak Morandi-brúnna í Genóa fékk tólf ára fangelsisdóm vegna vanrækslu brúarinnar sem hrundi árið 2018. Fjörutíu og þrír létust í slysinu, einu því versta í sögu Ítalíu, en réttað var yfir fimmtíu og sjö manns í dag vegna málsins.