Sundlaugin í Lundi í Öxarfirði hefur stendur auð og ferðamenn koma þar að læstum dyrum. Milli sundlaugar á Húsavík og Raufarhöfn í Norðurþingi eru 120 kílómetrar.Þorsteinn Snævar Benediktsson, formaður skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings, segir að endurbætur á sundlauginni séu á framkvæmdaráætlun sveitarfélagsins. Viðgerð á henni hafi verið á stefnuskrá allra flokka í sveitarstjórnarkosningunum í vor.Fjárhagur Norðurþings hefur staðið höllum fæti frá því að PCC hætti starfsemi á Bakka og sveitarfélagið brá á það ráð að fresta framkvæmdum, þar á meðal við sundlaugina í Lundi. Þorsteinn segir að við gerð fjárhagsáætlunar í haust skýrist hvenær laugin verður endurbætt.Kristinn Rúnar Tryggvason, ferðaþjónustubóndi á Hóli, segir að lokun laugarinnar sé bagaleg.„Það hefur mjög neikvæð áhrif