Tvennt dæmt fyrir kókaínsmygl

Karl og kona frá Póllandi voru í gær dæmd til fangelsisvistar fyrir tilraun til að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins. Smyglið uppgötvaðist þegar fólkið kom til Keflavíkurflugvallar frá Katowice í Póllandi. Bæði voru þau með efnin falin inni á sér.Karlmaðurinn fékk átta mánaða fangelsisdóm og konan sex mánuði. Fólkið átti efnin ekki heldur tók að sér að smygla þeim gegn greiðslu. Fólkið var sakfellt í Héraðsdómi Reykjaness.Ruv.is / Anton Brink
Tvennt dæmt fyrir kókaínsmygl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd