Hálendisvakt Landsbjargar stendur vaktina

Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar færir út kvíarnar í dag þegar björgunarsveit úr Hveragerði setur upp vakt í Nýjadal á Sprengisandi. Björgunarsveitir hafa verið í Landmannalaugum og Herðurbreiðarlindum og hópar frá Selfossi, Raufarhöfn og Breiðdal taka við vaktinni þar í dag.Einar Daníelsson er verkefnastjóri hjá Landsbjörg segir vel hafa gengið að manna hálendisvaktina, allir séu ólmir að hjálpa til, um 8-12 standa vaktina hverju sinni.Gul viðvörðun var í gildi á hálendinu í gær og segir Einar starfið hafa gengið vel þrátt fyrir veðurofsann.„Þetta hefur gengið bara mjög vel en auðvitað eru alltaf viðvik og eitthvað sem maður þarf að snúast í,“ segir Einar.Hálendisvaktin upplýsti ökumenn um viðvörunina sem var í gildi en lentu þó nokkrir ökumenn í sandstormi norðan Vatnajökul
Hálendisvakt Landsbjargar stendur vaktina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd