Prótein popp innkallað

Iðnmark hefur innkallað þrjár framleiðslulotur af Stjörnu prótein poppi vegna þess að mjólk var ekki gefin upp í innihaldslista á umbúðum. Loturnar sem eru innkallaðar eru með dagsetningarnar 03.11.26, 20.10.26 og 05.10.26.Matvælastofnun varar fólk með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við poppinu og hvetur það til að henda því eða skila inn gegn endurgreiðslu. Iðnmark innkallaði framleiðsluloturnar þrjár í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Prótein popp innkallað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd