Í dag er rétt ár frá því að eldgos hófst síðast á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. „Eitt sem er alveg hægt að slá föstu er að þessum umbrotum er ekki lokið, þau eru enn í gangi,“ segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur.Rétt fyrir klukkan fjögur aðfararnótt 16. júlí á síðasta ári hófst níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni. Kvikuhlaup hófst rétt fyrir miðnætti með ákafri jarðskjálftahrinu.Eldsumbrotin á Reykjanesskaga hafa staðið í um fimm ár. Árið 2021 hófst eldgos við Fagradalsfjall og var það upphafið á því sem koma skyldi. Gosin eru orðin tólf, níu þeirra á Sundhnúksgígaröðinni. EÐLILEGT AÐ FÓLK SPYRJI HVORT ANNAÐ GOS KOMI Páll segir eðlilegt að fólk velti fyrir sér hvort goshrinunni sé lokið eftir hamaganginn á fyrstu árum umbrotanna. Ljóst sé að svo er ekki. Land rís enn vi