Dómar voru í dag kveðnir upp í sakamáli gegn 57 einstaklingum vegna hruns brúar í Genóa 2018. 43 fórust í slysinu sem er eitt versta samgönguslys í sögu Ítalíu. 32 sakborningar hlutu dóma í dag. Yfirmaður fyrirtækisins sem átti og rak brúna fékk 12 ára fangelsisdóm.Einn af stöplum Morandi-brúarinnar gaf sig í mikilli rigningu 14. ágúst 2018. Þá var 51 ár liðið frá því brúin var tekin í notkun. Í dóminum í dag segir að allan þann tíma hafi ekki einu sinni lágmarksviðhaldi verið sinnt á þeim stöpli sem gaf sig. Saksóknari lýsti stöplinum sem tifandi tímasprengju.Giovanni Castellucci, æðsti yfirmaður Autostrade per l'Italia, hlaut tólf ára dóm fyrir vanrækslu og að valda dauða fjölda fólks með gáleysi. Autostrade per l'Italia er fyrirtækið sem átti og rak brúna. Það var upphaflega sett á fót