Handagangur á höfninni á Ísafirði

Fjölmennt er á Ísafirði í dag. Fjögur skemmtiferðaskip eru komin þar til hafnar með yfir sex þúsund farþega.Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sagði líf og fjör í bænum þrátt fyrir leiðindaveður. Gylfi segir að fólk sé vel klætt og njóti alls sem Ísafjörður hefur upp á að bjóða. HANDAGANGUR Á HÖFNINNI Þegar svona mörg skip koma til hafnar á sama tíma er að mörgu að huga. Fá rútustæði eru við bryggjuna og það voru ekki allir á eitt sáttir í morgun þegar sækja átti farþega í bílferð um Vestfirði.„Málið er þetta, ég kem þarna svona 5-10 sinnum á sumri að sækja fólk úr skemmtiferðaskipum og það eru bara vestfirsku fyrirtækin sem eru með bestu aðstöðuna og svo fá bara þeir að sækja fólk sem eru í áskrift að örfáum bílastæðum,“ segir Steinþór Ólafsson, rútubílstjóri. Hann var ekki sáttur
Handagangur á höfninni á Ísafirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd