Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi.