Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir alvarlegt ofbeldi gegn tveimur konum, annars vegar árið 2023 og hins vegar 2024.Í fyrri kafla ákærunnar er maðurinn sagður hafa svipt konu frelsi sínu í nokkrar klukkustundir í íbúð í Hafnarfirði frá laugardegi til sunnudags árið 2023, þvingað hana með sér upp á efri hæð íbúðarinnar og nauðgað henni þar.Í ákæru segir að konan hafi ýtt manninum af sér og reynt að komast undan en hann þá hrint henni fram af stigapalli, gengið í skrokk á henni og dregið hana á hárinu aftur upp á efri hæðina. Þar hafi hann svo haldið henni nauðugri þar til hann sofnaði.Í ákærunni eru taldir upp margvíslegir áverkar sem konan hlaut í aðförunum, í andliti og á höfði, brjóstkassa, baki og höndum. Engir þeirra voru þó lífshættulegir.Þetta telst samkvæmt ákæru varða við ákvæð