Eflaust munu fjölmargir landsmenn leggja land undir fót það sem eftir lifir sumars og heimsækja einhverjar af þeim rúmlega 120 sundlaugum sem landið hefur upp á að bjóða. Það kann að vekja athygli einhverra þeirra að töluverður verðmunur er á stökum aðgangi í sundlaugarnar eftir landshlutum.