Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að ráða Ólaf Þór Ólafsson í embætti sveitarstjóra. Hann tekur við starfinu 1. ágúst. Ólafur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Hann var sveitarstjóri í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi auk þess að sitja í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar þar sem hann var forseti bæjarstjórnar.16 sóttu um starfið og varð Ólafur Þór fyrir valinu. Formlega verður gengið frá ráðningunni á fundi sveitarstjórnar í næstu viku.Ólafur Þór Ólafsson.RÚV / Jóhannes Jónsson