Sparisjóðurinn Indó hefur nú bætt langtímalánum við vöruframboð sitt en hingað til hefur aðeins verið boðið upp á yfirdráttarlán. Framkvæmdastjóri Indó segir að langtímamarkmiðið sé að bjóða upp á húsnæðislán og gera fólki þannig kleift að kveðja stóru bankana og stunda öll sín bankaviðskipti við Indó.