Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti og hefur störf í ágúst. Valgeir mun leiða samskipti fyrirtækisins við almenning, hagaðila og fjölmiðla, auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks, að því er fram kemur í tilkynningu.