Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti. Hann hefur störf í næsta mánuði. Valgeir Örn hefur starfað í fjölmiðlum í nærri tvo áratugi og var síðustu árin varafréttastjóri RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins. Valgeir sér um samskipti Landsnets við almenning, hagaðila og fjölmiðla auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks.Valgeir Örn Ragnarsson.RÚV / Ragnar Visage