Alþjóðlegur hópur vísindamanna siglir í dag frá Bretlandi til Grænlands til að rannsaka hraða bráðnun íssins þar með drónum, litlum kafbátum og sjálfstýrðum sundvélmennum. Íshella Grænlands, sem samanstendur af milljónum rúmkílómetra af ferskvatni, bráðnar hratt vegna hlýnunar jarðar og vísindamenn telja að það gæti raskað mikilvægum hafstraumum í Atlantshafi sem stjórna veðurfari heimsins. Vegna hættulegra aðstæðna, þar sem ísjakar „kelfa“...