Slökkviliðsstjórinn látinn fara vegna rannsóknar á fjárreiðum slökkviliðsins

Starfslok Péturs Péturssonar sem slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu eru til komin vegna fjárreiða slökkviliðsins sem stjórn þess taldi rétt að vísa til rannsóknar lögreglu.Fréttir hafa verið sagðar af starfsflokum Péturs síðustu daga en þá fengust engar upplýsingar um ástæðu þeirra. Hún liggur nú fyrir.Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýslu, segir í yfirlýsingu að við yfirferð stjórnar á tilteknum þáttum í starfsemi Brunavarna Árnessýslu hafi komið fram upplýsingar sem stjórn hafi talið rétt að vísa til rannsóknar lögreglu. Þau atriði snúa að fjárreiðum Brunavarna Árnessýslu.„Stjórn Brunavarna Árnessýslu lítur málið alvarlegum augum. Með hliðsjón af því að málið er nú komið til rannsóknar hjá lögreglu telur stjórn ekki rétt að tjá sig frekar um efni þess að svo
Slökkviliðsstjórinn látinn fara vegna rannsóknar á fjárreiðum slökkviliðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd